Erlent

Rann á bananahýði og vill milljónir

Athugið að myndin er sviðsett.
Athugið að myndin er sviðsett.
Fimmtíu og átta ára gömul kona frá Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur stefnt lágvöruverslun þar í landi eftir að hún rann á bananahýði fyrir utan verslunina og féll aftur fyrir sig.

Sjálf heldur konan því fram að hún hafi slasast talsvert.

Hún hafi til að mynda eytt níu þúsund dollurum í lækniskostnað. Konan rétti fram sáttarhönd áður en hún höfðaði málið, en sú sátt hefði kosta verslunina 44 þúsund dollara. Eða rúmar fimm milljónir króna.

Verslunin hafnaði sáttinni og því hefur konan höfðað málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×