Stefndu á Grundartanga en vísað til Húsavíkur 27. apríl 2011 18:39
Finnsku fyrirtæki, sem skoðað hefur möguleika á að reisa efnaverksmiðju á Grundartanga, hefur verið beint til Húsavíkur. Landsvirkjun kveðst nú vísa öllum áhugasömum orkukaupendum norður. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefndi þetta verkefni í ræðu á Alþingi í síðasta mánuði og tiltók þá sérstaklega Grundartanga sem staðsetningu. Hún nefndi þó ekki fyrirtækið en það heitir Kemira og er með höfuðstöðvar í Helsinki. Velta þess í margvíslegum efnaiðnaði víða um heim nam yfir 300 milljörðum króna á síðasta ári. Fulltrúar þess hafa að undanförnu kannað möguleika á að reisa sódíumklóratverksmiðju á Grundartanga en það efni er notað í pappírsframleiðslu. Þótt þetta hljómi ekki beint sem umhverfisvæn starfsemi er fullyrt að svo sé og hráefnið sé fyrst og fremst salt og vatn. Finnarnir vilja kaupa allt að 60 megavött raforku til að framleiða eittthundrað tonn af efninu á ári en starfsemin kallar á 50-60 starfsmenn. Nú hefur orðið sú breyting á verkefninu að Landsvirkjun hefur beint fyrirtækinu á nýja staðsetningu, nefnilega Bakka við Húsavík, og fóru fulltrúar þess þangað til vettvangskönnunar fyrir páska. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kveðst ekki vilja tjá sig um viðræður við einstaka aðila, en staðfestir að öllum áhugasömum orkukaupendum sé nú vísað norður. Ástæðan sé sú að eina orkan sem Landsvirkjun geti boðið boðið nýjum aðilum á næstunni sé á Norðausturlandi. Segir Hörður að Landsvirkjun eigi nú í viðræðum við fimm til sex aðila um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum en kveðst ekki geta nefnt neina tímasetningu um hvenær þau mál skýrist frekar.
Mest lesið Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Erlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Erlent Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Erlent Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Útlit fyrir rólegt veður fram á föstudag Veður Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Innlent Fleiri fréttir Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Sjá meira