Fyrir helgi birtist umfjöllun um Not Knot-púða Ragnheiðar á einu af vinsælustu hönnunarbloggum Bandaríkjanna, Design Milk, en daglega sjá á bilinu hálf milljón til tveggja milljóna lesenda efnið sem birtist á síðunni.
Það var sjálfur ritstjóri síðunnar sem skrifaði um púðana og sagði það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar hún rak aukun í þá. Púðana gerir Ragnheiður úr íslensku einbandi.

Þetta er ekki fyrsta sinn sem hönnun Ragnheiðar hefur vakið aðdáun utan landsteinanna. „Ég hef verið mjög heppin síðan ég byrjaði að hanna og fengið umfjöllun um allan heim, meðal annars í Rússlandi, Kína og Taiwan. Þessir blaðamenn hafa haft samband við mig að fyrra bragði og mér finnst stundum ótrúlegt hvernig þeir fóru að því að finna mig."
Öll athygli erlendis frá er af hinu góða að sögn Ragnheiðar, því draumurinn er að koma vörunum á erlendan markað.
„Það er eiginlega það eina sem kemur til greina hjá mér núna og næsta ár fer í að koma vörunum mínum í búðir erlendis ásamt því að koma með nýjar vörur." -bb