Ferðamönnum fjölgar vegna Hörpu 13. október 2011 05:00
Tilkoma tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu mun fjölga ferðamönnum sem koma til Íslands á hverju ári. Tekjur tilkomnar vegna þessa gætu á næstu árum verið á bilinu 1 til 1,4 milljarðar króna á ári og orðið allt að þrír milljarðar á ári. Þetta er niðurstaða Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hefur gefið út skýrslu um áhrif Hörpu á komu ferðamanna. Sérstaklega er í skýrslunni horft til þeirra erlendu ferðamanna sem kunna að sækja ráðstefnur í Hörpu. Þá telja skýrsluhöfundar að tónlistarviðburðir í Hörpu muni einnig draga að ferðamenn. Í skýrslunni er loks bent á að Harpa er þegar farin að hafa áhrif á fjölda ferðamanna. Bókaðar og staðfestar hafa verið 24 ráðstefnur í Hörpu til ársins 2015. Gert er ráð fyrir að 14.000 þátttakendur sæki umræddar ráðstefnur, að stærstum hluta erlendir gestir. Þá er bent á að um 300 erlendir gestir sóttu tónleika Jonasar Kaufmann í Hörpu í maí. Stefnt er að því að gera frekari mælingar á því hversu margir erlendir ferðamenn koma hingað til lands vegna viðburða og ráðstefna í Hörpu eða vegna umfjöllunar um húsið í erlendum fjölmiðlum.- mþl /
Fréttir Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira