Borgarar njóti sólar við vegg Tollhússins 7. febrúar 2011 13:00 Hugmynd Stefáns Arnar Stefánssonar og Reynis Vilhjálmssonar felur í að sér að fjarlægja bílastæði við suðurhlið Tollhússins. Tillagan var unnin vegna samkeppni um Listasafn Reykjavíkur á sínum tíma.Mynd/Argos
Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur, leggja til að bílastæðin sunnan við Tollhúsið í Tryggvagötu verði færð úr sólinni og í skuggann hinu megin götunnar. Hugmyndin kviknaði hjá Gísla Marteini og Hildi þegar Hilmar Þór Björnsson arkitekt dró fram á bloggsíðu sinni tillögu frá kollegum sínum Stefáni Erni Stefánssyni og Reyni Vilhjálmssyni úr samkeppni um Listasafn Reykjavíkur frá árinu 1997. Þegar bílastæði eru farin á samkvæmt tillögunni að stækka stéttina framan við Tollhúsið og setja þar niður bekki svo borgarbúar geti átt notalega stund á sólríkum dögum. Stefán Már segir að hugmynd þeirra Reynis um flutning bílastæðanna hafi á sínum tíma tengst því að þeir vildu hafa inngang í listasafnið að austanverðu. „Ég held að það sé mjög áhugavert að taka þetta upp til skoðunar í sambandi við tengingar miðbæjarins við Tónlistarhúsið og gömlu höfnina,“ segir Stefán um endurvakningu hinnar gömlu hugmyndar. Hann bendir á að breytingin geti einnig tengst áætlunum sem uppi séu um stíga meðfram höfninni allt vestur á Granda. „Á gangstéttinni við Tollhúsið nýtur sólar ákaflega vel, húsið veitir skjól fyrir norðanáttinni sem skapar svipaðar aðstæður og við Kaffi París. Þarna getur verið sól og hiti, þótt norðannæðingur kæli aðra hluta miðborgarinnar. Bílarnir munu ekkert kvarta þótt þeir þurfi að standa í skugganum,“ segir Gísli Marteinn meðal annars á bloggsíðu sinni um tillöguna. „Allir staðir í bænum þar sem fer saman sól og skjól verða mjög eftirsóttir, til dæmis við Austurvöll og í Austurstræti og þannig getur það líka orðið þarna við mósaíkverkið hennar Gerðar Helgadóttur. Fyrir utan hvað það er sjálfsagt og eðlilegt að gera þessu flotta listaverki hennar svolítinn sóma – þannig að það sé hægt að horfa á það almennilega,“ segir Stefán Örn Stefánsson. gar@frettabladid.is Stefán Örn Stefánsson
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Innlent Fleiri fréttir Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Sjá meira