Innlent

Fundi flugmanna lauk án árangurs

Mynd/Pjetur
Samningamenn flugmanna hjá Icelandair og samningamenn félagsins koma saman til sáttafundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan tíu, eftir að fundi þeirra lauk í gærkvöldi án árangurs.

Eins og greint hefur verið frá snýst deilan nú fyrst og fremst um starfsöryggi flugmanna, en ungir flugmenn una ekki lengur því, að vera ráðnir á vorin og sagt upp að hausti, ár eftir ár í allt að fimm til sex ár, áður en þeir fá fastráðningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×