Allt stefnir í verkfall í kvöld 15. febrúar 2011 07:00 Samninganefndir bræðslumanna og Samtaka atvinnulífsins fundu ekki lausn á kjaradeilunni á samningafundi í húsakynnum embættis ríkissáttasemjara í gær. Mynd/Stefán Karlsson
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkfall starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum hefjist í kvöld. Samninganefndir bræðslumanna og Samtaka atvinnulífsins fundu ekki lausn á kjaradeilunni á samningafundi hjá Ríkissáttasemjara í gær. Ekki er öll von úti því til nýs fundar er boðað í dag. Verði hann hins vegar árangurslaus hefst verkfall í níu fiskimjölsverksmiðjum á Vopnafirði, Seyðisfirði, Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Starfsmenn þeirra eru tæplega áttatíu talsins. Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda í Vestmannaeyjum, sagði í gærkvöldi lítið hafa þokast og ekkert nýtt hefði „í sjálfu sér" verið í boði frá hendi Samtaka atvinnulífsins. Ragnar Árnason, formaður samninganefndar SA, sagðist vera svartsýnn á lausn í dag. „Við gefum þessu einhverja klukkutíma í fyrramálið og vonum það besta," sagði hann í gærkvöldi. Talsmenn SA og bræðslumanna hafa tekist harkalega á undanfarna daga. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hefur gefið í skyn að kröfur fámenns hóps muni skaða hagsmuni félaga þeirra og valda fyrirtækjum og samfélaginu öllu „stórkostlegu tjóni". Þessu hefur Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags, vísað til föðurhúsanna og sagt bræðslumenn hafa sýnt sáttavilja. Þá sé krafan eðlileg þar sem útflutningsfyrirtækin græði á tá og fingri vegna stórbættrar stöðu sinnar eftir hrun sakir gengisþróunar. Áætlað hefur verið að útgerðin verði af allt að ellefu milljörðum króna ef til verkfalls komi. Þar af séu fimm milljarðar í bræðslu og á bilinu þrír til sex milljarðar í frystum loðnuhrognum. - shá
Mest lesið Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira