Innlent

Nímenningarnir segja dóminn til málamynda

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af nímenningunum, tjáir sig um dóminn. Mynd/ GVA.
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af nímenningunum, tjáir sig um dóminn. Mynd/ GVA.
Nímenningarnir sem voru sakaðir um árás gegn Alþingi segja að dómurinn sem féll í héraðsdómi í morgun sé málamyndadómur. Hann sé í engu samræmi við þær alvarlegu ákærur sem þau hafi setið undir síðasta árið.

Það var enginn dæmdur fyrir árás gegn Alþingi í morgun, en aðalatriði ákærunnar laut að því ákæruefni. Hins vegar hlutu tveir skilorðsbundna fangelsisdóma fyrir brot gegn valdstjórninni og tvær konur fengu sektir.

Nímenningarnir segja að dómurinn sé nógu mildur til að sefa mögulega reiði fólks. „...en þó það harður að hann fullnægir refsiþörf ríkisvaldsins, breiðir yfir skömm þess og ýtir stoðum undir áframhaldandi ofsóknir í garð pólitískra andstæðinga þess," segir í yfirlýsingunni.

Nímenningarnir segja að Alþingi sé smánarblettur á íslensku samfélagi og beri upphaflega ábyrgð á þessu máli. Fjölmargir þingmenn og starfsmenn þingsins - sér í lagi forseti alþingis, klappstýra ákæruvaldsins - hafi tekið virkan þátt í að bera út róg um þau. Þær smávægilegu tilraunir örfárra þingmanna til að vega upp á móti þessari lygaherferð hafi verið þaggaðar í hel af þeim sömu og lugu hvað mest.

„Jóhanna Sigurðardóttir og félagar: Við fyrirlítum tækifærissinnaða og örvæntingarfulla tilraun ykkar til að bjarga eigin skinni á seinustu stundu," segja nímenningarnir í yfirlýsingu sem þeir sendu fjölmiðlum.






Tengdar fréttir

Dæmd fyrir brot gegn valdstjórninni

Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjavíkur segir enga vísbendingu vera um að þau sem ákærð voru fyrir árás á Alþingi hafi ætlað að aðhafast annað en að láta heyra í sér mótmæli vegna ástandsins í landinu frá þingpöllunum. Verður með engu móti talið að fyrir þeim hafi vakað að reyna að kúga Alþingi eða að athafnir þeirra geti talist vera sú árás á þingið að sjálfræði þess hafi verið hætta búin. Á þessari forsendu eru nímenningarnir sýknaðir af ákæru fyrir árás á Alþingi, segir í dómnum.

Tugir manns bíða átekta í héraðsdómi

Dómur verður kveðinn upp nú klukkan hálf níu í máli nímenninganna svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi. Þriggja daga aðalmeðferð í málinu var í janúar. Verði níumenningarnir sakfelldir, geta þeir átt yfir höfði sér fangelsisvist allt frá einu ári og upp úr.

Dæmt í máli níumenninganna í dag

Dómur verður kveðinn upp í máli ákæruvaldsins gegn níumenningunum svonefndu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan hálf níu, en þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi í desember árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×