Erlent

Opið verður til Gasa framvegis

Landamærahliðið Í Rafah verður framvegis opið fyrir Palestínumenn.
nordicphotos/AFP
Landamærahliðið Í Rafah verður framvegis opið fyrir Palestínumenn. nordicphotos/AFP
Egypsk stjórnvöld hafa ákveðið að frá og með næsta laugardegi verði landamærahliðið í Rafah yfir til Gasasvæðisins opið fyrir umferð Palestínumanna. Herstjórnin, sem tók við völdum í Egyptalandi til bráðabirgða eftir að Hosni Mubarak forseti hraktist frá völdum, segir opnun landamæranna eiga meðal annars að efla sættir milli Palestínumanna innbyrðis. Þetta er mikil stefnubreyting frá því að Mubarak var við völd.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×