Íslenski boltinn

Freyr: Frábær sigur sem kemur okkur í gang

Stefán Árni Pálsson á Kaplakrikavelli skrifar
„Þetta var ótrúlega ljúft að hafa klárað leikinn,“ sagði Freyr Bjarnason, leikmaður FH, eftir sigurinn í kvöld.

„Þetta var erfiður leikur fyrir okkur en við sýndum mikinn karakter að klára leikinn“.

„Mér fannst við spila svona nokkuð vel í þessum leik, fengum nokkur færi en náðum ekki að nýta þau almennilega“.

Freyr skoraði sigurmark FH í leiknum í byrjun fyrri hálfleiks af framlengingunni.

„Guðmundur Sævarsson hitti boltann vel, hann stefndi beint á hausinn á mér og ég gat ekkert annað gert að stýra knettinum í netið“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×