Innlent

Sængurverasett með liðinu þínu

Frá undirritun samningsins í Hagkaup
Frá undirritun samningsins í Hagkaup
Nú er hægt að kaupa sænguverasett með sínu íslenska íþróttafélagi. Það er Hagkaup sem lét framleiða fyrir sig um tíu þúsund eintök af settunum með einkennismerki og lit níu íþróttafélaga.

Gert hefur verið samkomulag við níu íþróttafélög um að styrkja þau um allt að fimm milljónir, þar sem 500 krónur af hverju seldu sængurveri rennur sem beinn styrkur til viðkomandi félags.

Í tilkynningu segir að verðið verði sambærilegt við það sem gerist á sængurfötum erlendra stórliða sem hafa verið ein mest seldu sængurver á Íslandi.

Liðin sem koma að samstarfinu eru: Breiðablik, Stjarnan, KR, Fjölnir, HK, FH, Keflavík, Fylkir og Haukar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×