Innlent

Hestamaður slasaður í Þjórsárdal

Hestamennska getur verið varasamt sport.
Hestamennska getur verið varasamt sport.
Hestamaður slasaðist um hálfsjö leytið í Þjórsárdalnum í dag. Þegar hópur fjallmanna stoppaði í dalnum á leið sinni í leitir sparkaði hestur í höfuð eins þeirra. Hann fékk ljótan skurð og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Selfossi. Lítið er vitað um líðan hans, en hann er með meðvitund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×