Sprenging í frönsku kjarnorkuveri 12. september 2011 21:00 Sjúkraþyrla við kjarnorkuverið í morgun. Mynd/AFP
Einn lést og þrír særðust þegar sprenging varð í kjarnorkuveri í Frakklandi í morgun. Í fyrstu var talin hætta á að geislavirk efni myndu leka út en svo varð ekki, að sögn franskra stjórnvalda. Það var rétt fyrir klukkan tíu í morgun sem sprengingin varð eftir að eldur kviknaði í geymslu fyrir kjarnaúrgang í Marcoule kjarnorkuverinu nálægt Nimes í suðurhluta Frakklands. Samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins framleiðir verksmiðjan MOX eldsneyti sem notað er til að endurvinna plutonium úr kjarnorkuvopnum en þar eru ekki kjarnaofnar. Forsvarsmenn verksmiðjunnar segja slysið vera iðnaðarslys en ekki kjarnorkuslys en í fyrstu var óttast að geislavirkt efni myndi leka út í andrúmsloftið í kjölfar sprengingarinnar. Það reyndist hins vegar ekki vera og varð enginn þeirra særðu fyrir geislun. Einn er hins vegar látinn og þrír særðir eftir sprenginguna þar af einn alvarlega. Kjarnorkuverksmiðjan í Marcoule var opnuð árið 1955 og er ein af elstu kjarnorkuvinnslum Frakklands. 58 kjarnaofnar eru í Frakklandi og hafa þeir allir verið prófaðir eftir kjarnorkuslysið sem varð í Fukushima í Japan í kjölfar jarðaskjálftans fyrir hálfu ári síðan. 75 prósent af rafmagni Frakklands kemur frá kjarnorku og hefur ríkið nýlega tilkynnt að það ætli að leggja milljarð evra í kjarnorkuiðnað landsins þar á meðal rannsóknir á öryggismálum ólíkt nágrannalöndum sem ætla sér að draga úr kjarnorkuvinnslu á komandi árum.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Innlent Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent „Þetta er í rauninni þvert á það sem við viljum sjá“ Innlent Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sjá meira