Ásgerður neitar því að hafa lagt Ólaf í einelti 14. mars 2011 12:06
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, neitar ásökunum um einelti í garð fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá bænum. Dómkvaddir matsmenn komust að þeirri niðurstöðu að Ásgerður hefði lagt framkvæmdastjórann í einelti. Ólafur Melsted er fyrrverandi framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar. Hann hefur verið frá vinnu í rúmt ár vegna eineltis, sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu bæjarstjórans. Dómkvaddir matsmenn hafa nú komist að þeirri niðurstöðu að sú sé raunin og krefst Ólafur þess að bæjarstjóranum verði vikið úr starfi. Í bréfi til bæjarstjórnar er gefinn 20 daga frestur til að leysa málið með sátt ella verði málið rekið fyrir dómstólum. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, sagðist í samtali við fréttastofu nú fyrir hádegi, neita því að hafa lagt Ólaf í einelti; hún hefði ekki enn séð skýrslu hinna dómkvöddu matsmanna og þyrfti að kynna sér hvaða forsendur lægju að baki mati þeirra. Hið meinta einelti snerist meðal um röð atvika þar sem Ásgerður átti að hafa gert lítið úr Ólafi fyrir framan samstarfsmenn, hún hafi dreift læknisvottorði hans til annarra starfsmanna og veitt honum áminningu án tilefnis. Í eineltisáætlun Seltjarnarnesbæjar segir að Seltjarnarnesbær beri ábyrgð á því að koma í veg fyrir að einelti eigi sér stað á vinnustað. Kveðið er á um að allar kvartanir vegna eineltis skuli rannsakaðar og málsmeðferð flýtt. Í áætluninni segir að þegar einelti er alvarlegt og endurtekið varði það áminningu eða brottrekstri úr starfi.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Fleiri fréttir „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Sjá meira