Fótbolti

Grétar Sigfinnur: Erum óhræddir við Slóvakana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
KR hefur ekki enn tapað leik í sumar.fréttablaðið/daníel
KR hefur ekki enn tapað leik í sumar.fréttablaðið/daníel
Slóvakíska liðið MSK Zilina sækir KR heim á KR-völlinn í kvöld en þetta er fyrri leikur liðanna í Evrópudeild UEFA. Slóvakíska liðið er geysisterkt og komst alla leið í riðlakeppni meistaradeildarinnar í fyrra sem er ekki auðvelt. Það verður því líklega við ramman reip að draga hjá KR sem hefur ekki enn tapað leik í sumar.

„Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að þetta er sterkt lið. Við mætum samt óhræddir og ætlum okkur sigur í leiknum,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR.

„Það er virkilega góð stemning í hópnum fyrir þessum leik. Við vitum ekki mikið um liðið og fengum aðeins einn leik frá þeim,“ sagði Grétar. En hverju ætlar KR að breyta í þessum leik?

„Við verðum að verjast betur sem lið. Við ætlum síðan að spila boltanum eins og við gerum alltaf og sækja á mörgum mönnum. Við munum ekki gefa neitt eftir og mætum fullir sjálfstrausts til leiks.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×