Nýja brúin opnuð fyrir miðja næstu viku Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. júlí 2011 14:26 Bílar hafa verið fluttir yfir ána í dag. Mynd/ Bjarni
Reynt verður að opna bráðabirgðabrúna yfir Múlakvísl fyrir miðja næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Brúarvinnuflokkar og aðrir starfsmenn Vegagerðarinnar vinna dag og nótt við að koma brúnni upp og tengja Hringveginn við hana. Stefnt er að því að bílar og fólk verði flutt yfir brúna þangað til. Brúin verður 156 metra löng. Stutt er í að allir stálbitarnir verði komnir á sinn stað og stefnt er á að allt trégólfið verði komið upp á brúna. Þá hefst einnig í dag vinna við að setja upp vegrið á brúna og hafist verður handa við að legga slitgólf ofan á trégólfið. Jafnframt er unnið að stífingum og festingum á brúnni. Stefnt er að því að hleypa vatninu undir nýju brúna aðfararnótt laugardags. Þar sem mikil dægursveifla er í vatnsmagninu er hægast um vik að hleypa vatninu undir þegar það er minnst undir morgun. Unnið er af krafti við vegtengingu brúarinnar að vestanverðu og koma þar upp garði með grjótvörn við brúarendann. Verið er að ýta upp efni úr ánni að austanverðu, efni sem fljótið ber með sér en það mun nýtast í varnargarðana og vegagerðina. Byggður verður varnargarður að austanverðu til að verja vegtenginguna við brúna þar.
Mest lesið Titringur á Alþingi Innlent Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Innlent Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Erlent Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Innlent Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Innlent Fólk boðað í sýnatökur vegna fuglaflensu Innlent Heimilislaus eftir brunann og finnst borgin bera ábyrgð Innlent Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Innlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Innlent Fleiri fréttir Titringur á Alþingi Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Fólk boðað í sýnatökur vegna fuglaflensu Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Heimilislaus eftir brunann og finnst borgin bera ábyrgð Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Sögulegt fuglaflensusmit á Íslandi og Trump ásælist Grænland Fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum vegna þrifa Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Eyddu tundurduflinu á botni Eyjafjarðar Gæsluvarðhald vegna stunguárásar framlengt 333 veðurviðvaranir gefnar út á nýliðnu ári Sárt að vera sakaður um að maka krókinn á ósiðlegan hátt Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Gagnrýna aðbúnað í hjólhýsabyggðinni á Höfðanum Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Sjá meira