Fótbolti

Umfjöllun: Frábær 3-0 sigur KR-inga á MSK Zilina

Kolbeinn Tumi Daðason á KR-velli skrifar
Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR verður í eldlínunni í kvöld
Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR verður í eldlínunni í kvöld Mynd/Vilhelm
KR-ingar unnu glæsilegan 3-0 sigur á MSK Zilina í 2. umferð forkeppni Evrópudeildar í knattspyrnu í kvöld. KR-ingar spiluðu manni fleiri í 40 mínútur og nýttu sér liðsmuninn vel.
Frábær 3-0 sigur KR-inga á MSK Zilina

KR-ingar unnu glæsilegan x-x sigur á MSK Zilna í 2. umferð forkeppni Evrópudeildar í knattspyrnu í

kvöld. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og fátt um opin færi. KR-ingar skoruðu eina mark

hálfleiksins úr sínu eina færi þegar Bjarni Guðjónsson sendi knöttinn í netið úr vítateignum.

Í síðari hálfleik fóru hlutirnir að gerast. Peter Sulek fékk sitt annað gula spjald snemma í

hálfleiknum og KR-ingar nýttu sér liðsmuninn. Fyrst skoraði Viktor Bjarki af stuttu færi eftir fallegt

spil Óskars Arnar og Guðmundar Reynis upp kantinn.

Aðeins þremur mínútum síðar féll Magnús Már í teignum og vítaspyrna dæmd. Kjartan Henry steig á

punktinn og hamraði hann upp í netið. Staðan orðin 3-0 og KR-ingar í stúkunni trúðu ekki sínum eigin

augum.

Það sem eftir lifði leiks fengu KR-ingar nokkur færi til þess að bæta við marki. Baldur Sigurðsson

komst tvisvar í góð færi en brást bogalistin. Zilina fengu nokkur hálffæri en ekkert til að tala um.

KR-ingar sigruðu 3-0 og fara með frábært veganesti í síðari leikinn í Slóvakíu sem fram fer að viku

liðinni.

Á morgun verður dregið í 3. umferð keppninnar og þá kemur í ljós hverjir mögulegir mótherjar KR verða

í næstu umferð.
TölfræðiKR-MSK Zilina 3-0

1-0 Bjarni Guðjónsson (25.)

2-0 Viktor Bjarki Arnarson (51.)

3-0 Kjartan Henry Finnbogason (54.)

Rautt spjald: Peter Sulek (48.)

Skot (á mark): 14-12 (8-6)

Varin skot: Hannes 6 – Dúbravka 5

Horn: 5-7

Aukaspyrnur fengnar: 16-9

Rangstöður: 1-2

Áhorfendur: 1.234




Fleiri fréttir

Sjá meira


×