Innlent

Óhöppum Strætó fækkar um 44%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Reynir Jónsson er forstjóri Strætó. Mynd/ Stefán.
Reynir Jónsson er forstjóri Strætó. Mynd/ Stefán.
Óhöppum Strætó í umferðinni fækkaði um 44% á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Síðasta ár var þó metár hvað öryggi í akstri Strætó varðar. Alls voru 49 óhöpp skráð á fyrstu sex mánuðum ársins, en 88 í fyrra.

Í tilkynningu frá Strætó segir að árið í fyrra hafi verið metár hjá Strætó hvað óhöpp í umferðinni varðar. Ef fram heldur sem horfir muni yfirstandandi ár verða enn betra.

Ekki náðist tal af Reyni Jónssyni, forstjóra Strætó, vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×