Fótbolti

Marco Pezzaiuoli hækkaður um tign - Nýr aðalþjálfari Gylfa

Elvar Geir Magnússon skrifar

Marco Pezzaiuoli hefur verið ráðinn nýr aðalþjálfari Hoffenheim í Þýskaland en með liðinu leikur íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson. Ralf Rangnick var þjálfari en sagði upp vegna óánægju með þá ákvörðun félagsins að selja Luiz Gustavo til FC Bayern.

Pezzaiuoli er fæddur 1968, hann var aðstoðarmaður Rangnick en hefur nú verið hækkaður um tign. Hann hefur síðustu ár þjálfað unglingalandslið Þýskalands.

Hoffenheim er í áttunda sæti þýsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×