Menning

Tímaritin streyma út

Spássían.
Spássían.
Ný tölublöð fimm tímarita helguðum menningu og fræðum hafa komið út á undanförnum dögum: Tímarit Máls og menningar, Spássían, Stína, Skírnir og Saga.

Meðal efnis í TMM er grein Guðna Elíssonar um loftlagsmál og pólitíska umræðu um olíuleit á Drekasvæðinu. Þröstur Helgason og Bergljót Kristjánsdóttir skrifa hvort sína greinina um Gyrði Elíasson og Heimir Pálsson skrifar um nýbakaðan Nóbelsverðlaunahafa, Thomas Tranströmer.

Jólabókaflóðið er tekið til kostanna í nýjasta tölublaði Spássíunnar, en að mati Auðar Aðalsteinsdóttur er uppgjör við fortíðina áberandi þema í skáldsögum ársins. Þá birtast yfir tuttugu dómar um nýjar bækur og ítarlegt viðtal við Vigdísi Grímsdóttur.

Í Stínu, tímariti um bókmenntir og listir kennir ýmissa grasa að venju. Soffía Auður Birgisdóttir skrifar meðal annars um ljóðagerð Herdísar Andrésardóttur, Guðbergur Bergsson gefur uppskrift að ljóðrænum saltfisk og Hallgrímur Helgason skrifar um sagnavélina Ísland.

Í Skírni má finna greinar um bæði þjóðfélagsleg mál og bókmenntaleg; Páll Skúlason lýsir hugsjóninni um menntaríkið og spyr hvernig hún geti nýst Íslendingum til að takast á við kreppuna, Svanur Kristjánsson ræðir upphaf kvótakerfisins 1983 og Kristín Loftsdóttir greinir umræðuna um grunnskólalögin, trúarbrögðin og fjölmenningarsamfélagið.

Margt bitastætt efni er að finna í Sögu, tímarits Sögufélags, þar á meðal takast fræðimenn úr ýmsum greinum á við spurningunum um hvað ævisaga sé. - bs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.