Erlent

Beckham hjónin flytja til Bretlands

David og Victoria Beckham.
David og Victoria Beckham. Mynd/AFP
Heimildir herma að David og Victoria Beckham hafi fengið nóg í bili af lífinu í Los Angeles og vilji komast til Bretlands á nýjan leik. Hjónin fluttu ásamt börnunum sínum til borgarinnar eftir að David gerði samning við knattspyrnuliðið Los Angeles Galaxy fyrir nokkrum árum.

Í byrjun ársins greindu Beckham hjónin frá því að þau ættu von á sínu fjórða barni í sumar, en fyrir eiga þau synina Brooklyn, Romeo og Cruz. Hjónin eru sögð vilja að strákarnir fari í breska skóla og því sé tímabært að flytjast heim til Bretlands.  

Samningur Davids við Galaxy rennur út síðar á árinu og er talið að fjölskyldan haldi til Bretlands í framhaldinu. Hjónin ætla þó ekki að selja hús fjölskyldunnar í Los Angeles enda eiga þau fjölmarga vini í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×