Erlent

Alec Baldwin biður Charlie Sheen um að fara í sturtu

Alec Baldwin hefur vegnað  vel á undanförnum árum en sjónvarpsþátturinn  30 Rock nýtur vinsælda.
Alec Baldwin hefur vegnað vel á undanförnum árum en sjónvarpsþátturinn 30 Rock nýtur vinsælda.
„Leggðu þig, farðu í sturtu og grátbiddu um starfið. Aðdáendur þínir krefjast þess,“ segir leikarinn Alec Baldwin, úr sjónvarpsþættinum 30 Rock, um Charlie Sheen sem fyrr í mánuðinum var rekinn var úr sjónvarpsþáttaröðinni Two And A Half Men.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá hefur Charlie ekki verið sá stilltasti í Hollywood, en hann hefur haldið mörg partý þar sem klámstjörnur og kókaín koma fyrir. Það varð til þess að forsvarsmenn Warner Bros, framleiðandi þáttanna, fengu nóg og ráku Charlie.

Alec hvetur Charlie til að fara í meðferð. „Farðu í Letterman og biddu almenning og þá sem ráða öllu hjá Warner Bros afsökunar. Það er ekki of seint."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×