Innlent

Agnes verði dæmd til þungrar refsingar

„Öll hin umstefndu ummæli eru ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnanda. Hagsmunir stefnanda af því að fá ummælin dæmd dauð og ómerk eru því miklir," segir í stefnu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, fyrir hönd Inga Freys fréttastjóra á DV, vegna fréttar Morgunblaðsins 31. janúar um hina svokölluðu njósnastölvu á Alþingi.

Ingi Freyr krefst þess að tíu ummæli í fréttum sem Agnes Bragadóttir skrifaði um mál njósnatölvunnar á Alþingi verði dæmd dauð og ómerk. Þá stefnir Ingi jafnframt Agnesi til að greiða sér tvær milljónir króna í miskabætur vegna fréttaflutningsins.

Í stefnunni segir meðal annars: „Þess er krafist að stefnda verði dæmd til þungrar refsingar fyrir brot sín enda eru afleiðingar brotanna alvarlegar fyrir stefnanda en vegið var með harðsvíruðum hætti að æru hans, persónu og starfsheiðri."

Agnes lét að því liggja í skrifum sínum í Morgunblaðinu að Ingi hefði fengið ungan mann undir lögaldri til að stela fyrir sig gögnum úr tölvum gegn þóknun og staðhæfði að hann hefði stöðu grunaðs manns í lögreglurannsókn á því máli. Þá var lögregla sögð rannsaka hvort maðurinn ungi sem grunaður er um þjófnaðinn tengdist máli njósnatölvunnar, meðal annars vegna meintra tengsla hans við Wikileaks og Inga. Yfirmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa staðfest að Ingi hafi ekki réttarstöðu grunaðs manns.

„Umfjöllun stefndu um stefnanda er uppfull af rangfærslum og ærumeiðandi aðdróttunum, en þar er stefnandi sakaður um háttsemi sem margra ára fangelsi liggur við samkvæmt íslenskum lögum," segir í stefnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×