Erlent

Rak vænginn í stélið á JFK flugvellinum

JFK flugvöllurinn.
JFK flugvöllurinn.
Tvær fullar farþegaþotur lentu í árekstri á flugbraut John F. Kennedy flugvallarins í Bandaríkjunum í gær. Önnur þotan var frá Air France-flugfélaginu en hin var að koma frá Boston.

Svo virðist sem önnur þotan hafi rekið vænginn í stélið á hinni á flugbrautinni þegar vélin var að snúa sér. Enginn meiddist í árekstrinum.

Draga þurfti flugvélarnar af vettvangi. Samkvæmt flugmálayfirvöldum í Bandaríkjunum hafði atvikið engin áhrif á aðra flugumferð um völlinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×