Erlent

Fannst getnaðarlimurinn góður felustaður fyrir kókaínið

Antoine Banks verður ákærður þrátt fyrir að hafa fundið afar frumlegan stað fyrir fíkniefnin
Antoine Banks verður ákærður þrátt fyrir að hafa fundið afar frumlegan stað fyrir fíkniefnin Mynd Metro Corrections
Lögreglumenn fylltust grunsemdum þegar þeir fundu lítinn poka með kókaíni í teygju á boxer-nærbuxum karlmanns sem þeir stöðvuðu fyrir umferðarlagabrot.

Antoine Banks var þó með meira af fíkniefnum á sér eins og lögreglumennirnir komust að þegar þeir gerðu líkamsleit á honum í framhaldinu. Þrátt fyrir að vera ýmsu vanir kom þeim það mjög á óvart þegar þeir fundu annan poka af kókaíni á heldur óvenjulegum stað - undir forhúð Antoine.

Hann situr nú í Louisville-fangelsinu í Kentuckyfylki Bandaríkjanna og fer fyrir dómara á Valentínusardaginn, 14. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×