Innlent

Leita árásarmannsins enn

Samkaup, Búðardal.
Samkaup, Búðardal.
Lögreglan leitar enn manns sem réðst á starfsmann Samkaupa í Búðardal að kvöldi 5. júlí síðastliðins. Greint er frá þessu á Skessuhorni, fréttavef Vesturlands.

Árásarmaðurinn réðst á starfsmanninn skömmu efttir lokun verslunarinnar og veitti henni áverka með gosdós, en höggin ollu því að stúlkan fór úr kjálkalið. Þá reif hann föt stúlkunnar áður en hann lagði á flótta. Sama kvöld leituðu nokkrir ungir menn að árásarmanninum en án árangurs.

Þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Borgarfirði og Dölum.

Lögreglan neitar að gefa frekari upplýsingar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×