Innlent

Böndin beinast að íslenskri sól

Íslendingar eru duglegir að nýta sér sólríku dagana til útiveru en geislar þeirrar gulu á íslenskri grundu kunna að vera skaðlegri en hingað til hefur verið talið.
mynd/rósa
Íslendingar eru duglegir að nýta sér sólríku dagana til útiveru en geislar þeirrar gulu á íslenskri grundu kunna að vera skaðlegri en hingað til hefur verið talið. mynd/rósa
Mælingar á roðvaldandi geislum hér á landi gefa það til kynna að háa tíðni sortuæxla beri ekki eingöngu að skýra með ljósabekkjanotkun og utanlandsferðum heldur einnig að hluta til með íslenskri sól. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu læknanna Bárðar Sigurgeirssonar og Hans Christians Wulf sem birtist í nýjasta eintaki Læknablaðsins.

Sortuæxlum, sem er alvarlegasta tegund húðkrabbameina, hefur fjölgað hér á landi undanfarna áratugi þó eitthvað hafi dregið úr þeim síðustu ár. Hefur sú þróun venjulega verið tengd við aukna notkun ljósabekkja og utanlandsferðir en í ljósi þessara mælinga segja læknarnir að vert sé að taka þátt íslenskrar sólar með í reikninginn.

Samkvæmt krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands greindust að meðaltali 49 manns með sortuæxli í húð á árunum 2004 til 2008 og tíu létust árlega. Mælingarnar á roðvaldandi geislum sólar fóru fram í Skorradal síðastliðið sumar og er þetta í fyrsta sinn sem slíkar mælingar fara fram hér á landi.

Notast er við svokallaðan ÚF-stuðul en þegar hann er í fimm stigum þýðir það að Íslendingur með venjulega húðgerð getur eingöngu verið um eina klukkustund í sólinni án þess að húðin roðni. Í júnímánuði í fyrra mældist ÚF-stuðullinn í sextán daga yfir fimm stigum. Mest náði hann 7,5 stigum.- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×