Körfubolti

Naumt tap hjá Jóni Arnóri og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu naumlega á útivelli á móti Lucentum Alicante, 75-77, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Alicante-liðið er í toppbaráttunni á meðan Zaragoza er um miðja deild.

Jón Arnór var í byrjunarliðinu og stóð sig vel. Hann skoraði 10 stig og gaf 4 stoðsendingar á félaga sína. Jón Arnór hitti reyndar aðeins úr 3 af 11 skotum sínum utan af velli en setti niður bæði vítin sín.

CAI Zaragoza er í 12. sæti deildarinnar með 4 sigra í 10 leikjum en Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa mæta Blancos de Rueda Valladolid á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×