Innlent

Flögguðu til stuðnings níumenningum í miðborg New York

Aðgerðarsinnarnir í New York.
Aðgerðarsinnarnir í New York.

Aðgerðarsinnar í New York flögguðu til stuðnings níumenningunum í miðborg New York í vikunni. Í pósti frá hópnum segjast þau hafa safnast saman við skrifstofu íslenska konsúlsins í borginni og sungið.

„Styðjum níumenningana, réttarhöldin halda áfram, við fylgjumst með," segjast aðgerðarsinnarnir hafa sungið. Í bréfi sínu segjast þau hafa fengið mikil viðbrögð frá almenningi - tiltækið hafi vakið mikla forvitni.

Á myndunum sem bárust með bréfinu eru andlit aðgerðarsinnana úr fókus en þau standa með stóran borða sem á stendur - Samstaða með níumenningunum. Þau segja umheiminn fylgjast með réttarhöldinum sem séu umdeild og minni á lélegan brandara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×