Innlent

Þingmannsbörnum fjölgar ört

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bleyjuskipti rædd á Alþingi? Mynd/ Pjetur.
Bleyjuskipti rædd á Alþingi? Mynd/ Pjetur.
Þeim fjölgar ört þingmannsbörnunum þessa dagana. Formönnum tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna, þeim Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, munu fæðast börn á næstunni.

Samkvæmt upplýsingum Vísis er Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna, langt gengin með fjórða barn þeirra og mun eiga nú í september. Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs, er hins vegar ekki eins langt gengin með fyrsta barn þeirra hjóna.

Vísir sagði svo frá því fyrr í vikunni að Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra gengur tvíbura og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ól þriðja barn sitt og Gunnars Sigvaldasonar í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×