Fótbolti

Svínaflensa grípur um sig í leikmannahópi Köln

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frank Schäfer, stjóri Köln.
Frank Schäfer, stjóri Köln. Nordic Photos / Bongarts
Fjórir leikmenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln hafa greinst með svínaflensu en liðið mætir Kaiserslautern í deildinni nú um helgina.

Þá hefur aðstoðarþjálfarinn Thomas Hässler einnig verið settur í einangrun vegna svínaflensunnar.

„Þetta er ákveðin tegund af svínaflensu en við verðum samt að halda ró okkar, sagði þjálfarinn Frank Schäfer."

Þeir leikmenn sem hafa verið greindir með veikina eru Youssef Mohamad, Kevin McKenna, Miso Brecko og Konstantinos Giannoulis.

Köln varð í þriðja neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og er nú í tólfta sæti með 21 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×