Innlent

Lögreglan fann átta kíló af marijúana

Haugur af grasi. Átta kíló af marijúana eru töluvert magn, eins og sjá má á þessari mynd.Mynd/lögreglan
Haugur af grasi. Átta kíló af marijúana eru töluvert magn, eins og sjá má á þessari mynd.Mynd/lögreglan

Lögreglan lagði hald á átta kíló af marijúana í geymsluhúsnæði í Kópavogi í síðustu viku. Sex kíló fundust við húsleit á staðnum og tvö til viðbótar í fórum manns sem gekk þar í flasið á lögreglunni.

Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, var handtekinn og gekkst við því að eiga fíkniefnin. Hann hafði pakkað þeim í litlar sölueiningar.

Í kjölfarið var leitað á heimili mannsins og þar fundust um 170 kannabisplöntur. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×