Innlent

Stal öllu sem hönd á festi

Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir fjölmarga þjófnaði, gripdeildir og fjársvik.

Einkum stal maðurinn úr matvörubúðum. Má þar nefna grillkjöt, lax og DVD-myndir, kjúklingabringur og aðra matvöru.

Þá stal hann 20 þúsundum hjá fyrirtækinu Dominos og Nokia-farsíma úr leigubíl, auk þess sem hann sveik annan leigubílstjóra um greiðslu á fargjaldi. Þá greip hann með sér gullúr, að verðmæti 32.800, í verslun úrsmiðs.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×