Eldrauður Landspítali í þriðja sinn 7. febrúar 2011 10:02 Upplýstur Landspítalinn
Landspítalinn við Hringbraut er nú í þriðja sinn lýstur upp í rauðum lit til að minna á forvarnir hjá konum vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga má úr líkum á þessum sjúkdómum. GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation. Verndari átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Formaður stjórnar GoRed er Vilborg Sigurðardóttir sérfræðingur í hjartasjúkdómum. Konur eru oft ekki meðvitaðar um eigin áhættu og greinast með kransæðasjúkdóm um 10 árum síðar en karlar en jafn margar konur og karlar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Á árinu 2009 létust 84 konur úr heilaæðasjúkdómi (slag) á Íslandi og 75 karlar. Samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar eykst tíðni áhættuþátta margfalt hjá konum eftir 50 ára aldur, svo sem hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og ofþyngd. Jákvætt er að verulega hefur dregið úr reykingum á Íslandi en reykingar eru mjög stór áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma, ekki síst hjá konum. Með hollu mataræði og reglubundinni hreyfingu má minnka líkurnar á flestum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Það eru einungis fáein ár síðan farið var að leggja áherslu á að miðla upplýsingum til kvenna og heilbrigðisfagfólks um hve tíðni hjarta- og æðasjúkdóma er há hjá konum. Mikilvægt er að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og heilaæðasjúkdóma til að geta brugðist skjótt við. Enginn einstaklingur læknast af slíkum sjúkdómi - heldur lærir hann að lifa með honum. GoRed á Íslandi er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Heilaheilla og Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga, auk fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga og Lýðheilsustöðvar. GoRed stendur nú í þriðja skiptið fyrir átaki til að fræða konur um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, einkennin og hvernig hægt er að minnka líkurnar á að fá þessa sjúkdóma. Ætlunin er að vera með víðtæka kynningu, skemmtun og fræðslu í Smáralind í Kópavogi frá og með 12. febrúar næstkomandi og nær átakið hámarki þann 17. febrúar en þá verður haldið konukvöld í Smáralind með ýmsum skemmtilegum uppákomum. Á Akureyri verður einnig vegleg dagskrá á konudaginn þann 20. febrúar. Til mikils að vinna, því markmið átaksins er að fræða konur og karla um einkenni hjarta- og æðasjúkdóma en sú þekking getur bjargað mannslífi.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Fleiri fréttir Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Sjá meira