Erlent

Sex fórust í flugslysi

Að minnsta kosti sex fórust þegar lítil farþegaflugvél hrapaði nálægt Cork á Írlandi í dag. Vélin var að koma frá Belfast þegar hún lenti í mikilli þoku. Flugmaðurinn gerði tvær tilraunir til að koma inn til lendingar en hætti við sökum þokunnar.

Í þriðja skiptið reyndi hann að lenda með þessum skelfilegu afleiðingum. Vélin skall á flugbrautinni og snérist í loftinu áður en hún rann á hvolfi eftir brautinni.

Fjórir komust af sjálfsdáðum út úr brakinu en tveir farþegar festust í vélinni. Þeir eru á gjörgæslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×