Fótbolti

Ribery verður lengur frá

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Bongarts
Svo virðist sem að Franck Ribery muni ekki spila með Bayern München á ný fyrr en um miðjan febrúar í fyrsta lagi.

Ribery var frá vegna meiðsla í tæpa tvo mánuði í haust en meiddist á hné í leik Bayern gegn Wolfsburg fyrir tæpum tveimur vikum síðan.

Læknar Bayern hafa nú fyrirskipað að Ribery hvíli sig algjörlega í fimm daga og er talið að hann verði aftur orðinn leikfær eftir þrjár vikur.

Ribery mun því líklega missa af vináttulandsleik Frakklands og Brasilíu í París þann 9. febrúar. Bayern mætir um helgina Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×