Erlent

Lundúnalögreglan kærir mótmælendur

MYND/AP
Lundúnalögreglan hefur ákært 149 manns fyrir þátt þeirra í óeirðunum í borginni yfir helgina þar sem hundruð þúsunda manna komu saman til þess að mótmæla niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar.

Alls voru um 200 teknir höndum um helgina en mestu lætin voru aðfararnótt sunnudagsins þegar óeirðir brutust út í kjölfar friðsamra mótmæla.

Ráðist var á búðir í miðborginni og rúður brotnar og kom til átaka á milli fólksins og lögreglu. Um 80 manns slösuðust í átökunum, þó enginn alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×