Ekki algengt að uglur stilli sér upp fyrir fólk 7. febrúar 2011 06:00 Ekki er algengt að uglur séu á ferðinni í björtu, eins og sú á myndinni í Grafarvoginum í gær. Nokkur hundruð branduglur eru að jafnaði á Íslandi yfir vetrartímann.fréttablaðið/arnþór „
Þetta var mjög gaman og afar sérstakt. Ég varð rosalega hissa að sjá ugluna sitja í rólegheitum svona nálægt okkur,“ segir Anna Björg Kristbjörnsdóttir, íbúi í Gerðhömrum í Grafarvogi. Önnu brá heldur betur í brún um þrjúleytið í gærdag þegar hún kom heim til sín og sá branduglu hvíla sig á grindverki hjá heimili hennar. „Við lögðum bílnum og röltum að henni, en hún var mjög spök og lét sér hvergi bregða. Við vorum líklega í um tveggja metra fjarlægð frá henni og hún flaug ekki í burtu fyrr en ljósmyndari Fréttablaðsins smellti af henni myndum. Þá höfum við líklega farið aðeins of nálægt,“ segir Anna. Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands, segir brandugluna einu uglutegundina sem er árviss varpfugl hér á landi. Hinar tegundirnar sem orpið hafa á Íslandi eru snæugla og eyrugla. „Það er eitthvað af branduglum hér á Reykjavíkursvæðinu á hverjum vetri,“ segir Ólafur og bætir við að mest séu þær á ferðinni í síðdegisrökkrinu, um nætur og á morgnana. „Það er ekki mjög algengt að þær stilli sér svona upp fyrir fólk. Þær nota trjálundi til að sofa í og þekkt náttból þeirra eru til dæmis í Öskjuhlíð, Elliðaárdal, Skógræktinni í Fossvogi og skógræktarlandinu á Keldum. Þegar þær vaka eru þær á ferðinni og reyna að fanga mýs og smáfugla,“ segir Ólafur. - kg
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Innlent Fleiri fréttir Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Sjá meira