Erlent

Bandaríkjamenn þrýsta á Egypta um að aflétta neyðarlögum

MYND/AP

Bandaríkjamenn krefjast þess að Egyptar aflétti þegar í stað neyðarlögum sem sett voru í landinu fyrir þremur áratugum síðan. Joe Biden varaforseti ræddi í gær við kollega sinn Omar Suleiman og tilkynnti honum þetta. Biden hvatti einnig til þess að lögreglan hætti þegar í stað að berja á mótmælendum og blaðamönnum í landinu.

Fleiri voru viðstaddir mótmælin á Frelsistorginu í gær en nokkru sinni fyrr og virðist almenningur ekki sætta sig við þá rólegu stjórnkerfisbreytingu sem yfirvöld hafa boðað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×