Innlent

Mörg skíðasvæði opin

Skíðasvæðið á Dalvík verður opið frá klukkan tíu til hálf fimm. Gott veður er á svæðinu. Logn og sex stiga frost og mjög gott skíðafæri. Þá verður opið í Hlíðarfjalli frá klukkan tíu til fjögur. Klukkan átta í morgun var sjö stiga frost og tveir metrar á sekúndu.

Skíðasvæðið á Seyðisfirði verður opið frá klukkan ellefu til fimm og skíðasvæðið á Siglufirði verður opið frá klukkan tíu til fjögur. Þar er logn, heiðskírt og fjögurra stiga frost.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×