Innlent

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíll valt út af Grindavíkurvegi í gærkvöldi.

Allir voru þeir útskrifaðir eftir skoðun og aðhlynningu þar. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í mikilli hálku.

Samskonar aðstæður leiddu til þess að bíll valt út af veginum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í gærköldi. Kona, sem var ein í bílnum, var flutt á sjukrahús, þar sem hún kenndi eymsla í baki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×