Menning

Andblær liðinna ára

Agnes Amalía.
Agnes Amalía.
Sardas strengjakvartett.
Laugardaginn 15 október halda Sardas strengjakvartett og söngkonan Agnes Amalía sópran tónleika í Gerðubergi undir yfirskriftinni Andblær liðinna ára.

Á efnisskránni eru íslenskar dægurperlur eftir konur og frönsk tónlist í andblæ eftirstríðsára. Hugljúf ástarljóð og tregafullar ballöður í splunkunýjum útsetningum Martins Frewer fiðluleikara Sardas kvartettsins.

Frönsku lögin ættu margir að kannast við í flutningi listamanna eins og Yves Montand, Edith Piaf og Josephine Baker.

Söngperlurnar eru m.a eftir Ástu Sveinsóttur, Maríu Brynjólfsdóttur, Sigfríði Jónsdóttur, Hjördísi Pétursdóttur og Ingibjörgu Þobergs.

Sardas félagar eru allir þrautreyndir hljóðfæraleikarar úr röðum Sinfóníuhljómsveitar Íslands; en kvartettinn hefur verið starfandi frá árinu 1995. Arnþór Jónsson leikur á selló, Guðmundur Kristmundsson á víólu, Kristján Matthíasson á fiðlu og Martin Frewer á fiðlu; en hann útsettur allt efni tónleikanna.

Agnes Amalía lauk söngprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000. Alina Dubik hefur verið kennari hennar undanfarin misseri og sækir Agnes tíma hjá henni í Nýja tónlistarskólanum. Agnes Amalía hefur komið fram á ýmsum tónleikum í gegnum tíðina ein og í kórum og einnig í söngleikjum, leikritum og óperum. Þá er hún meðlimur Íslenska sönglistahópsins og syngur með Kammerkór Seltjarnarness.

Tónleikarnir fara fram í Gerðubergi laugardaginn 15. október klukkan 15. Aðgangseyrir er 1.500 krónur en miðar eru seldir við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×