Erlent

Knattspyrnustjarna tók upp kynlífsmyndband

Knattspyrnustjarna sem leikur í efstu deild á Englandi tók upp kynlífsmyndband með liðsfélaga sínum í landsliðinu og tveimur stelpum á hótelherbergi á dögunum.

Leikmaðurinn er um tvítugt og sést stunda kynlíf með stelpunum á meðan félagi hans hvetur hann áfram.

The Sun greinir frá þessu á heimasíðu sinni í kvöld. Blaðið hefur myndbandið undir höndum en getur ekki birt það né nafngreint leikmanninn af lagalegum ástæðum.

„Hann stundar kynlíf á baðherberginu með einni stelpunni, síðan fara þau aftur í svefnherbergið," segir heimildarmaður við blaðið. „Fótboltakappinn er með góða ímynd en myndbandið er mjög gróft og hneykslandi."

Myndbandið sem er 47 mínútur var tekið upp á farsíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×