Innlent

VÍS undirritar Jafnréttissáttmálann

Guðmundur Örn Gunnarsson og Inga Dóra Pétursdóttir handsala samninginn við undirritun.
Guðmundur Örn Gunnarsson og Inga Dóra Pétursdóttir handsala samninginn við undirritun.
VÍS hefur gerst aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Í því felst að VÍS skuldbindur sig siðferðilega til að vinna að jafnréttismálum í sínum ranni, sýna samfélagslega ábyrgð og hafa frumkvæði í jafnréttismálum. Haft er að leiðarljósi að fyrirtækið hafi á að skipa fjölbreyttum og hæfileikaríkum hópi starfsfólks sem eykur samkeppnishæfni þess. Skuldbindingar um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni eru í heiðri hafðar og stuðlað að efnahagslegum og félagslegum aðstæðum sem veita öllum jöfn tækifæri.

Jafnréttissáttmálinn lýsir sjö viðmiðum sem fyrirtæki og aðrar stofnanir taka mið af til að efla konur og auka hlut þeirra í atvinnulífinu. Hann er sameiginlegt átak UN Women, sem áður hét UNIFEM og UN Global Compact og er ætlað að hvetja fyrirtæki til að stuðla að jafnrétti kynja bæði á vinnustað og í samfélaginu almennt.

VÍS er fyrst íslenskra fyrirtækja, sem ekki er með starfsemi erlendis eða er hluti af alþjóðlegri samsteypu, til að skrifa undir Jafnréttissáttmálann. Guðmundur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS segir heiður að taka þátt í  Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. „Sáttmálinn stendur fyrir gildi sem við höfum skipað í öndvegi um langt skeið. Til að mynda var jafnréttisstefna innleidd hjá VÍS fyrir áratug og henni hefur verið fylgt vel eftir æ síðan. Jafnréttissáttmálinn er okkur hvatning til að gera enn betur og við látum ekki okkar eftir liggja á þessu sviði nú frekar en fyrri daginn."

Inga Dóra Pétursdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi segir ánægjulegt að fá stórfyrirtæki eins og VÍS í hóp þeirra sem skuldbinda sig til að vinna eftir  Jafnréttissáttmálanum. „Ég bind miklar vonir við  að fleiri fari að þessu góða fordæmi VÍS og skrifi undir sáttmálann á næstu mánuðum".



Fleiri fréttir

Sjá meira


×