Innlent

Spara fé og hlífa umhverfi

Selecta hefur fengið fjóra metanbíla til afnota.
Selecta hefur fengið fjóra metanbíla til afnota.

Fyrirtækjaþjónustan Selecta á Íslandi hefur tekið í notkun fjóra nýja metanbíla af gerðinni Mercedes Benz Sprinter frá Öskju. Bílarnir ganga fyrir íslensku metani og vonast aðstandendur fyrirtækisins til þess að slá með því tvær flugur í einu höggi því bílarnir eru bæði umhverfisvænir og ódýrari í rekstri.

Í tilkynningu segir að Selecta stefni að því að umhverfisvæða bílaflota sinn eins og kostur er með því að velja eingöngu bifreiðar sem ganga fyrir umhverfisvænu eldsneyti.

Auk þess að stuðla að minni útblæstri, reiknar Selecta með að árlegur sparnaður af rekstri bílanna sé yfir 200.000 kr. á ári fyrir hvern bíl ef einvörðungu er ekið á metani. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×