Verkamenn biðja Steve Jobs um hjálp Davíð Roach Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2011 17:45 Steve Jobs hefur ekki svarað bréfinu. mynd/afp
Kínverskir verkamenn sem veikst hafa við framleiðslu snertiskjáa fyrir ýmis raftæki frá Apple, svo sem iPhone og iPod Touch, hafa nú skrifað bréf til Steve Jobs og kvartað yfir illri meðferð. 137 vinnumenn hafa veikst vegna eitrunar af völdum efnisins n-hexane og segja farir sínar ekki sléttar. Hinn tævanski verksmiðjueigandi hafi ekki greitt þeim nægar bætur, þeim verkamönnum sem þáðu bætur hafi verið bolað úr starfi og ekki hafi verið samþykkt að ábyrgjast sjúkrareikninga ef til frekari veikinda komi. Fimm starfsmenn sendu Steve Jobs, framkvæmdastjóra Apple, bréf þar sem þeir biðla til fyrirtækisins um hjálp vegna atviksins. Forsvarsmenn Wintek, tævansks eiganda verksmiðjunnar, segja að n-hexane hafi verið notað í stað áfengis vegna þess að það gufi hraðar upp og flýti fyrir framleiðslu snertiskjáanna. Þeir hafi hins vegar nú hætt allri notkun efnisins. Verkamenn sem komust í snertingu við efnið hafa fundið fyrir svima og þreytu, miklum svita á höndum og fótum, dofatilfinningu í höndum og bólgu og sársauka í fótum. Sérfræðingar segja að dagleg nálægð við efnið geti valdið langvarandi skaða. Í ársskýrslu Apple sem kom út í síðustu viku er viðurkennt að atvikið hafi átt sér stað og sagt að fyrirtækið hafi beitt sér fyrir því að Wintek hætti notkun á efninu. Þá kemur fram að Apple hafi beðið Wintek um að bæta loftræstingu í verksmiðjum sínum. Talsmenn Apple hafa hins vegar ekki tjáð sig um bréf starfsmannanna, né hvort þeir verði við bón þeirra um frekari hjálp.
Mest lesið Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Erlent Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Erlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Innlent Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Djúp lægð fer yfir landið Veður Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Erlent Miklir eldar í grennd við Aþenu Erlent Fleiri fréttir Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Miklir eldar í grennd við Aþenu USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Gerðu loftárás á skóla í nótt Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu Átta daga geimferð gæti orðið að átta mánuðum Sjá meira