Regluverkið er meingallað 6. janúar 2011 03:15 Stefán Gíslason
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Umís ehf. Environice, segir að díoxín og fúrön hafi töluverða sérstöðu meðal algengustu mengunarefna vegna þess hversu alvarleg og langvinn áhrif þau geti haft á lífríkið og heilsu fólks. „Í raun geta menn alls ekki leyft sér að umgangast þessi efni og vísbendingar um óhóflegan styrk þeirra með viðlíka léttúð og ef um önnur og minna eitruð efni væri að ræða. Því þykir mér það mjög sláandi og reyndar ógnvekjandi hversu lítið virðist hafa verið gert með þessar niðurstöður úr díoxínmælingunum frá 2007. Sjálfsagt geta sérfræðingar rökrætt um það hver séu eðlileg viðmiðunarmörk fyrir díoxín. Skoðun mín er einfaldlega sú, að ef díoxín og fúrön mælast einhvers staðar yfir viðmiðunarmörkum verður að grípa til aðgerða þegar í stað, hvort sem styrkur efnanna er rétt yfir viðmiðunarmörkum eða tvítugfaldur.“ Stefán telur að eðlilegt hefði verið að krefjast þegar í stað annarrar mælingar til að staðfesta niðurstöðurnar og grípa í framhaldinu þegar í stað til róttækra aðgerða til úrbóta. „Mér finnst eðlilegt og algjörlega nauðsynlegt að velta fyrir sér og fara vel ofan í saumana á því hvernig hægt var að láta þrjú aðgerðarlaus ár líða frá því að niðurstöðurnar frá 2007 lágu fyrir. Fljótt á litið sýnist mér veilan liggja fyrst og fremst í regluverkinu, þar sem ekki virðist vera gert ráð fyrir að neitt sérstakt ferli fari tafarlaust í gang við aðstæður sem þessar.“
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Fleiri fréttir Eldur í skorsteini í Mávahlíð Þórólfur ætlar ekki fram Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ „Ég hef alltaf haft augun á þessu“ Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði Búin að biðja Jón afsökunar Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Sjá meira