Menning

Fagna Reykjavik Rocks

Kápa bókarinnar.
Kápa bókarinnar.
Haldið verður útgáfuteiti í dag til að fagna útgáfu bókarinnar Reykjavik Rocks. Bókin er kynningarrit í léttum dúr um Reykjavík vorra daga og meðal helstu höfunda efnis í bókinni eru Hallgrímur Helgason, Örn Úlfar Sævarsson og Jón Atli Jónasson.

„Bókin birtir innsýn inn í Reykjavík sem er erlendum ferðamönnum að mestu leyti ókunnur. Hér er því um nýstárlega landkynningu að ræða og afar eigulega bók að ræða sem er tilvalin tækifærisgjöf handa erlendum ferðamönnum og vinum,“ segir í tilkynningu.

Jón Gnarr borgarstjóri skrifar leiðara bókarinnar en í henni er að finna ljósmyndir eftir ljósmyndarana Óskar Hallgrímsson, Gulla Má, Kjartan Má Magnússon, Oscar Bjarnason, Pétur Friðgeirssons og Björn Loka Björnsson. Hönnun er í höndum Siggeirs Hafsteinssonar. GAG útgáfa gefur út.

Útgáfuhófið hefst á Hemma og Valda við Laugaveg klukkan 16. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu Reykjavík Rocks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×