Erlent

Snarpur jarðskjálfti suður af Jövu

Allsnarpur jarðskjálfti um 300 kílómetra suður af  eyjunni Jövu í gærkvöldi olli því að flóðbylgjuviðvörun var gefin út um sunnanverða Indónesíu.

Skjálftinn sem var upp á 7,1 stig á Richter olli þó ekki flóðbylgju og var viðvörunin afturkölluð um tveimur tímum síðar. Ekki er vitað um tjón af völdum skjálftans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×