Erlent

Mótmælti hjálmnotkun og lést af völdum höfuðáverka

Tortímandinn notaði aldrei hjálm, en hann var líka með haus úr stáli.
Tortímandinn notaði aldrei hjálm, en hann var líka með haus úr stáli.
Mótorhjólamaður í New York ríki í Bandaríkjunum lést í gær þegar hann féll af hjóli sínu. Maðurinn var í stórum hópi mótorhjólamanna sem komu saman til að mótmæla nýjum lögum sem gera mótorhjólamönnum skylt að vera með hjálm.

Hann missti stjórnina á Harley Davidson hjólinu sínu og skall með höfuðið á malbikinu. Hann var látinn áður en komið var með hann á sjúkrahús. Lögreglan segir að hann hefði að öllum líkindum lifað fallið af ef hann hefði verið með hjálm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×